Katrín Helga - Vinurinn of góði ft. Mount Theodore

Sdílet
Vložit
  • čas přidán 4. 05. 2015
  • Click to listen to Reykjavíkurdætur on Spotify: open.spotify.com/artist/0tzZM...
    Lag - Mount Theodore www.mounttheodore.com
    Texti og myndband - Katrín Helga
    Texti:
    Augun mín og augun þín
    mætast í störum á börum
    og við förum okkur hjá
    þú glottir oní gólfið ef ég horfi þig á
    Já! Fagna ég í leyni
    þá öllum öðrum gleymi
    í smá erum við ein í heimi
    lítum á hvort annað feimin dreymin
    og bráðum
    langar okkur báðum
    þögn, þögn, þögn, spennuþrungin þögn
    og ögn of löng augnsambönd
    hönd mín í hönd þína teygir sig
    það kemur beygur á þig
    og þú segir við mig
    að þú megir ekki
    að þú eigir kannski
    í öðru landi í öðru sambandi
    þögn, þögn, þögn, spennuþrungin þögn
    og ögn of löng augnsambönd
    (Augun mín og augun þín)
    þögn, þögn, þögn, spennuþrungin þögn
    og ögn of löng augnsambönd
    Ég bakka og þakka
    þér fyrir að segja mér satt
    en eins og ýtt hafi verið á takka
    magnast spennan hratt
    satt best að segja
    langar mig ennþá meira
    þá, fyrst ég ekki má
    í smá kelerí og káf
    Já við viljum alltaf bara það
    sem ekk’er hægt að fá
    þrái þig þó það sé bannað
    við viljum afklæða hvort annað
    Kannað hljóma
    dysfunctional
    Ég veit þú vilt mig,
    getur varla stillt þig
    þú ert tryllt til
    reynir að hemja þig, temja þig
    en þú er vilt dýr
    Við streitumst á móti
    þó blóð í æðum þjóti
    held það hljóti
    að kynda undir kynjanna bálköst
    Að mega ekki smakka þennan forboðna ávöxt
    erum lögst í huganum hlið við hlið
    að njóta þess að gera það sem er forboðið
    Ég veit ég vil
    ég veit ég vil
    (Augun mín og augun þín)
    þögn, þögn, þögn, spennuþrungin þögn
    og ögn of löng augnsambönd
    (Augun mín og augun þín)
    þögn, þögn, þögn, spennuþrungin þögn
    og ögn of löng augnsambönd
    Er við hittumst að nýju
    Er'ann bún'að dömp’essari píu
    pínu skrítið hvernið lífið hrekkir þig
    þegar við loksins megum er ég ekki til
    Því freistingin felst í því að meg’ekki
    Nei, við viljum ekki menn á silfurfati
    spennan horfin
    segðu orðin
    ljúgðu, ljúgðu, ljúgðu
    segðu að þú eigir ennþá kærustu
  • Hudba

Komentáře •