ROKLAND (Stormland) - Stikla fyrir kvikmyndina Rokland

Sdílet
Vložit
  • čas přidán 10. 09. 2024
  • Rokland er hárbeitt svört kómedía, byggð á samnenfndri skáldsögu eftir Hallgrím Helgason. Með aðahlutverk fara: Ólafur Darri Ólafsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir og LADDI.
    Böddi (Ólafur Darri Ólafsson) snýr aftur til Sauðárkróks eftir 10 ára námsdvöl í Þýskalandi og ætlar sér að breyta hugsunarhætti Íslendinga. Á bloggsíðu sinni, og yfir nemendum sínum, predikar Böddi sínar háleitu, þýsku hugsjónir í bland við víkingaaldar rómantík. Hann fer heldur geyst og er rekinn úr starfi sem kennari við Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra eftir misheppnaða vettvangsferð til Drangeyjar.
    Böddi heldur samt áfram uppteknum hætti því hann er hugsjónamaður en lánið leikur ekki við hann. Sú sem hann elskar vill hann ekki og sú sem hann notar er að nota hann. Á bloggsíðunni eys hann úr viskubrunni sínum yfir mörlandann við lítinn fögnuð Sauðkræklinga. Á Króknum verður engu breytt!
    Böddi heldur því af stað til Reykjavíkur á hestinum Nietzsche. Hann er með byssu í vasanum og háleitar hugsjónir fyrir lýðinn. Hann er tilbúinn að hefja byltingu. Alvöru byltingu.

Komentáře •