Rósin okkar - Rósin okkar í Reykjavík.wmv
Vložit
- čas přidán 17. 05. 2010
- Rósin okkar í Reykjavík
Vísur e. Helga Zimsen.
Eitt er blóm sem aðeins grær
ef að gleðin lokkar.
Vökvist anda vel þá nær
vexti rósin okkar.
Undir froðu fjarar glas
fyllir loftið hljómur.
Hér við glerja glaum og mas
gleði heyrist rómur.
Grípum um glasið
gleðja skulum fasið.
Rósin okkar leikur lag,
með léttum brag.
Reykvískri á rökkurnótt
rambar fólk á bari.
Hér er hvorki hljótt né rótt
hljómar tónaskari.
Trantinn opnum takti með
tónaflóðið lokkar.
Bregðist ekki bandi geð
blómstrar Rósin okkar.
Þögn er ekki okkar fag
aldrei hljóðin spörum,
núna skulum láta lag
leika á streng og vörum.
Trommi Skarpi taktviss þá
tóninn línu spilar,
þarna skinni skellir á
skeið og ekki bilar.
Ari líkt og óður rær
aflast tónaforði.
Vaskur lögin veiða fær
vel af tónaborði.
Þegar Kristján gítar- góð
-gripin hefur spunnið,
tóna getur fjörugt fljóð
fljótt um salinn runnið.
Sólveig hörpu seyðir frá
són með besta þokka.
Upp að sviði óðar má
eyru gesta lokka.
Rósa brýnir bogann og
bjartri raustu kveður.
Engin heyrast ekkasog,
aðeins það sem gleður.
Spritt er þitt já þitt er spritt,
þarflaust er að gráta.
Gleðja skaltu geðið þitt
í glasið aftur láta.
Þynna bjór er þarfalaust
þínum söltu tárum,
heldur skaltu hefja raust
hérna versin klárum. - Hudba
Wonderful!! Thank you!
Gaman að þessu.Flott hjá ykkur Rósa.
Wonderful, Skarpi!
Mudcatter Genie